1.gr. Nafn og heimilisfang
Félagið heitir "Samskil ehf", og er skráð til heimilis Klettagörðum 9, 104 Reykjavík.
2. gr. Tilgangur
Tilgangur félagsins er að reka skilakerfi með hagstæða verðskrá fyrir aðildarfyrirtæki. Fylgt er lögum framleiðenda og innflytjenda raf- og rafeindatækja í samræmi við III. kafla laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003. Í því skyni rekur félagið skrifstofu og annast söfnun og endurvinnslu raf- og raftækjaúrgangs fyrir framleiðendur og innflytjendur gegn gjaldi eins og nánar er rakið í reglum þessum. Tekjur skulu að jafnaði vera hærri en gjöld en reynt að hafa reksturinn í jafnvægi. Starfssvæði félagsins er allt landið.
3. gr. Aðild að Samskil
Sækja þarf skriflega um aðild að Samskil með umsókn sem er aðgengileg á vef félagsins.
4. gr. Trúnaður
Stjórnarmenn og aðildarfyrirtæki hafa ekki upplýsingar um markaðshlutdeild eða sölu á vörum sem sendar eru inn til félagsins til ákvörðunar endurvinnslugjalds. Endurskoðandi og annað starfsfólk Samskila sem hefur aðgang að upplýsingum um markaðshlutdeild aðildarfyrirtækja undirrita trúnaðaryfirlýsingu við ráðningu vegna þessara upplýsinga.
5. gr. Gjaldskrá
Endurvinnslugjöld eru reiknuð út frá upplýsingum frá Tollstjóra um magn innflutnings á raftækjum og innheimt eftir hver mánaðarmót af Samskil samkvæmt verðskrá sem er aðgengileg á vef félagsins. Endurvinnslugjöld eru reiknuð frá og með þeim mánuði sem er að líða þegar gengið er í félagið enda hafi aðildarfyrirtækið áður verið í öðru skilakerfi eða eru að hefja innflutning eða framleiðslu á tækjum sem heyra undir lög um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003. Annars er greitt endurvinnslugjald miðað við gildistöku lagana og miðað við innflutning frá 1.janúar 2009.
6. gr. Úrsögn
Úrsögn þarf að vera skrifleg og með tveggja mánaðar fyrirvara miðað við mánaðamót. Samskil tilkynnir stýrinefnd raf- og rafeindatækjaúrgangs um úrsögn og tekur Samskil ekki ábyrgð á að fyrirtæki fylgi skilyrðum laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 eftir úrsögn. Úrsögn breytir engu um skyldu til greiðslu endurvinnslugjalds þar til þess mánaðar er úrsögnin tekur gildi.
7. gr. Lok aðildar
Fyrirtækjaaðild lýkur við úrsögn eða brottvísun aðildafyrirtækis. Samskil getur fyrirvaralaust brottvikið aðila ef aðildar- eða endurvinnslugjöld eru ekki greidd eða ef um alvarlegt brot er að ræða gegn hagsmunum eða tilgangi félagsins. Til brottvísunar getur einnig komið fáist ekki upplýsingar um magn innflutnings frá Hagstofu. Sé um brottvísun að ræða vegna vangoldinna gjalda mun uppsögn taka gildi við upphaf vanskila og mun Samskil tilkynna stýrinefnd raf- og rafeindatækjaúrgangs að viðkomandi fyrirtæki sé ekki og hafi ekki verið aðili að skilakerfi Samskila frá þeirri dagsetningu sem vanskil ná yfir.





Samskil er í samstarfi við Hringrás hf sem sér um allan rekstur á skilakerfinu og er óháður aðili þar sem fyllsta trúnaðar er gætt í meðförum á öllum viðskipta upplýsingum er Tollstjóri veitir. Þær upplýsingar eru notaðar til innheimtu á þeim gjöldum sem hver og einn aðili að skilakerfinu þarf að greiða í samræmi við sinn innflutning.