Að sækja um aðild að skilakerfinu Samskil er einfalt, það þarf bara að sækja umsóknareyðublað með því að smella á hlekkinn hér til vinstri, það er síðan fyllt út og sent til Samskila, Klettagörðum 9, 104 Reykjavík annaðhvort í faxi (550 1906) eða með tölvupósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Með því að skrá fyrirtæki þitt í Samskil ert þú komin í góðan hóp fjölda fyrirtækja sem völdu þann kostinn að gerast félagar í Samskil og stöðugt bætast við ný fyrirtæki.





Samskil er í samstarfi við Hringrás hf sem sér um allan rekstur á skilakerfinu og er óháður aðili þar sem fyllsta trúnaðar er gætt í meðförum á öllum viðskipta upplýsingum er Tollstjóri veitir. Þær upplýsingar eru notaðar til innheimtu á þeim gjöldum sem hver og einn aðili að skilakerfinu þarf að greiða í samræmi við sinn innflutning.